Friday, October 27, 2006

Þegar ég man

Ég man þegar allir áttu eins síma. Allir tóku upp símann sinn þegar einhver hringdi í þá. Ég notaði hringitón kenndan við Jumping, það voru margir aðrir með þennan hringitón líka.

Núna eru allir með eitthvað víðóma, fjölrása, ógeð. Sumir eru snjallir og taka upp sína eigin rödd eða sitt uppáhaldslag.

"Gauti? Gauti? Druslastu til að svara í símann, þetta gæti verið mamma þín" eða eitthvað þvíumlíkt.
En ég ber ekki sama húmor og allir, hvað þá tónlistarsmekk.
"Halló Jóhann, svaraðu áður en það er of seint, ég tel upp að 10 (allir vita að ef maður er með frelsi skellir línan sér inn í talhólfið eftir 14 sekúndur). 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 8, 9 og 10. hahahaha" eða þá lag með einhverju meinstrím kjaftæði. Já ég verð því bara að sætta mig við að dæma fólk út frá hringitónum þeirra.

Kannski þetta hjálpi bara til, sjá það fólk sem ég vil ekki hafa samskipti við.
Takk Japan og Indland, fyrir svona frábæra og skjóta þróun á hringitónum.

Annars er hringitónninn minn "in da club" með 50 Cent, dæmi hver sem dæma vill.

Wednesday, October 18, 2006

tennis

Það var verið að segja mér að bloggið væri leiðinlegt.

En ég lenti í afar skemmtilegu tilviki um daginn.

Ég var að kaupa borðtenniskúlur í Útilíf.

Ég: Afsakið en hvar eru borðtenniskúlurnar?
Afgreiðslukona: þarna við skódeildina
Ég:Ha, í skotdeildinni?
Afgreiðslukona:Já í skódeildinni
Ég:Nú ókei, haha.

Þarna hlæ ég í endann þar sem mér finnsta afar fyndið að það skuli vera búið að sérflokka borðtenniskúlur svona nákvæmlega. Ég hef fengið fast smash í augað og í testis þannig að ég varð að vera sammála þessari flokkun. En það var ekki skotdeild í þessari Útilífsbúð. Ég þurfti því að lokum að átta mig á þessum misskilningi af sjálfsdáðum og biðja skósöludreng um aðstoð. Ég var því 3-5 mínótum of lengi að kaupa borðtenniskúlur og afsaka því hér með seinkomu mína í heim hinna hugsandi manna.

Monday, October 02, 2006

Glósa

þetta er komið í gagnið, ekki sagt að þessi síða muni umbreyta heiminum en hver veit nema það umbreyti mér og kannski einhverju smá hjá þér ef eitthvað vitrænt kemur fram úr fingurgómunum á mér næstu mánuðina.

Annars er ekki vonast eftir miklu á þessari síðu!